03maí
Ég er búin að ákveða það að taka mér smá pásu frá þessarri elskulegu síðu minni.
Ástæða? Jú ég hef alveg nóg að gera fyrir og eins og glöggir lesendur sjá er ég ekki mikill bloggari í mér lengur. En ég þakka fyrir mig og öll kommentin sem ég hef fengið.

Lov ya guys. :)
04apríl
Wavaweeva!
Borgarfjörður er ágætis staður. Við Guðni keyrðum á Bláma hingað á mánudaginn, sveitalífið er fínt, nema vekjaraklukka. Það er páskafrí, for God's sake!
Fórum í Kringluna í gær. Og í Mótor. Gaurarnir í mótor eru gay, það fer ekki framhjá neinum. En það eru til slæmir hommar og góðir hommar. Slæmu halda sig án efá í Mótor. Ég varð illa creeped out í gær þegar einn þeirra, gamall maður í greinilegum hræðinlegum hvítum þröngum nærbol undir öðrum sveittum hvítum bol, sagði ótrúlega perralegt ,,Hallóó".
Ewww...
Annars keypti ég mér sitt lítið af hverju en komst að því að versla-föt-úthaldið mitt er komið alveg í núll, sökum þess að ég hef ekki farið að versla alveg ótrúlega lengi.
Guðni er að ryksuga, Inga Lóa að taka til í eldhúsinu og ég ætti að vera í sturtu, vegna ferð í Borgarnes eftir smá. Yay.
Höfum þetta stutt, svona einu sinni, og njótið páskafrísins - nema þú Alex ^^, sökum seinasta kommentis. Hnjehnje.
24mars
A: Óójá.
... en ég er samt að einhverfast með að blogga bara fyrir sjálfa mig, yay!
Annars er helsta ástæðan fyrir því að ég er ekki að blogga er að ég nenni því ekki, en það sem mikilvægra er að það er eitthvað að gerast hjá mér, finally. Vika í páskafrí og þá ætla ég að skella mér með Guðna heim til hans ^^, partýpartý. Eeen fyrst ætla ég að segja frá því hvað er búið að vera að gerast. Vei.
Um seinustu helgi sýndi ég á brúðarsýningu í Húsasmiðjunni/Blómavali fyrir mor, ásamt bunch af fólki, sem var spes (sérstaklega 2ja tíma hárgreiðslan og förðunin, báða dagana... zzz..) en samt mjög gaman.

Ég og gaurinn minn (sem ég veit ekki einusinni hvað heiti, obbosí)

:)
Svooo var söngvakeppni MAí fyrrakvöld, geeeðveikt gaman og Guðni, Gummi og Görn fengu verðlaun fyrir frumlegasta atriðið
. Yeah!
06mars
Úff, ég er
hræðilegur bloggari O.O...
....og ég vona að það verði loksins varið í eitthvað blogg hjá mér. Shall we?
Nú HVAÐ gerði ég þá seinustu daga ef ég var
ekki í tölvunni? Hmm..
- Ég og Guðni skruppum á Nings á seinasta miðvikudag vegna
4 mánaða afmælis okkar ^^ Nings er næs staður btw.
- Gettu Betur á seinasta föstudag þar sem Versló kom norður og eiginlega
smá.. rústaði okkur. En það var ótrúlega gaman! Ég og Guðni vorum í 4.röð og vá, æðisleg
stemning í salnum.
- MR kom í heimsókn á föstudagskvöldið og við tókum á móti þeim strax og Gettu Betur var búið með kakói og kleinuhringjum-með-engu-á. Ég er meira fyrir súkkulaðið^^!
Nísku-MA.
- Á laugardagskvöldið var svo
Morfískeppni milli MR og MA, eða öllu heldur æfingakeppni þar sem bæði lið eru dottin út, en það var mjöög mikið stuð. Þetta var frekar frjálslegt og engir alvöru dómarar og var MR dæmt sigur en bæði Eygló og MR stóðu sig frábærlega og þetta kvöld var æði... eða fyrir utan Jón Örn að hlaupa á eftir mér með skál með vatni í og Guðni að dýfa mér undir eldhús-vistar-vaskinn,
karlmenn.
- Éééég
skal halda afmælið mitt! Það verður bara því miður ekki alveg strax, mamma snarbrjáluð því ég ætlaði að hleypa fólki í hús-fullu-af-ryki.
Ég sé ekkert ryk!
En baðherbergið er svona um það bil búið, YAY! Eeen neei, þá er bara að mála ALLT húsið, endurgera baðherbergið niðri og brjóta niður vegg í eldhúsinu svo við komum tvöföldum ískáp fyrir.
Kúl dót, en ég er að verða klikkuð á
Super-Mario bræðrum hérna á baðherberginu. Samt í alvöru talað, þeir eru
alveg eins og Super Mario bros!! Það er það eina góða við þetta... reyni að hlægja ekki samt.
- Ég
slétti hárið á Guðna - haha Guðni, ég kjaftaði. Það var geeeðveikt fyndið, ég veit ekki eins og hvað hann varð, álfur eða eitthvað. I got photos - sumar harðar, aðrar
ekki-svo-harðar.

Guðni og
krullað hár. Já, og ég.

Svoltið hart?
- Þetta eru samt auðvitað, og sem betur fer, mín gleraugu.Svoo að that's about it. Eitt enn samt..
- ég fékk 9 hjá Sverri Pál !!

- Inguuuunn...
Kommentiði ^^
15febrúar
Já, ég biðst afsökunar á bloggleysi, ég er einfaldlega bara orðin löt/latari. My bad.
Afmælisdagur minn var semsagt á mánudaginn og ég fékk bæði falskan afmælissöng á dönsku, og skárri á þýsku

! Haha góður 1.A. En já ég er búin að fá sitthvað í afmælisgjöf, þó eitthvað lítið, fékk kúl úr frá ma og pa og ætla að kaupa mér buxur líka ^^, fékk disk með Franz Ferdinand frá Trausta bró og snyrtidót frá Hörpu systir. Ætlaði mér að halda afmælið næstu helgi(23.-25.), en fólkið er að endurnýja baðherbergið (sturta með útvarpi, nuddi og drasli, yaay!) og svo ætla þau að mála nánast allt húsið að innan, piff. Reyndar ágætt að mála herbergið hennar Olgu því við svitsum herbergjum þegar hún fermist, og herbergið hennar er gult, rautt og appelsínugult sem stendur! Jeminn. Held hún hafi verið litblind...
En afmælisdagurinn var frábær í alla staði og fékk afmælisóskir frá ótrúlegasta fólki. Gaman af því ^^
Takk æðislega fyrir það

Valentínusardagur svokallaður var svo í gær og honum fylgdi ljóð frá Guðna og.. eiginlega ekkert meira. ^^. Ég áttaði mig svo á því að ég er ekkert rómantísk og skrifaði ,,seint valentínusarbréf" áðan, úh.
Ugh. Þarf að fara að klára lesendabréfið mitt til SvP. En gaaaman.
http://b2.is/?sida=tengill&id=217230- úh, ég fann hvernig ,,sumir" kennarar gefa einkunnir... mvahah.
02febrúar
Hmm... fyrsti dagurinn í skólanum í dag. Ágætt, að mestu leyti prófsýni og eitthvað, sem er kúl. Ég hef reyndar ekkert komið
alltof vel útúr prófunum, piff. Rugl. Svo lengi sem ég fell ekki... og komist inn á náttúrufræðibraut ^^. Yeah. Eina prófið sem ég er ánægð með er
þýska, svoltið svekkjandi í hinum fögunum að falla niður um 1-3 í einkunn, frá 10 í 7
(stærðfræði), 9 í 8
(allt hitt eiginlega) og svona. En ég hef ekki farið í þýsku þannig að ekkert til að svekkja mig á ^^, hnjehnje.
Fórum reyndar í fyrsta jarðfræðitímann okkar í dag, vá mér fannst ég heimsk. Ég vissi
ekki neitt. Vissi EINHVER EITTHVAÐ? Úff, ég veit fyrirfram að ég fell í því, veeei. Svo hugsar maður ,,jarðfræði" hmm.. getur ekki verið það erfitt, en ég er
verst í landafræði
(Guðni, ég veit þó hvar England er! Hahaha), og júúú þetta er örugglega svona 99% landafræði. Ugh.
En við förum víst í eðlis-, erfða- og líffræði líka... það er, eins og við Alex orðum það,
ziemlich cool!
ÉG á afmæli eftir 11 daga. Þú ættir að fara að pæla í afmælisgjöfinni minni.. MÚHAHAHAH.
- Neeei djók, ég veit
ekkert hvað mig langar í... líklega bara svona 1.A sem koma ^^ vúú!
- En
hvað sem þú gerir, ekki segja ,,Gógó" á afmæliskortið, kommon. (:
The good - the bad - the ugly.
Good: Your son studies a lot in his room
Bad: You find several porn movies hidden there
Ugly: You're in them
Good: Your having sex
Bad: The dog came in the room and licked your butt
Ugly: You liked it
Good: Your son's finally maturing
Bad: He's involved with the woman next door
Ugly: So are you
25janúar
*Útrás hefst*
Ughhhh,
barnapössun, hvernig er það þegar ég er loksins komin í frí, þá er skellt krökkunum á MIG?
- Mááá ég njóta frísins míns, eftir 2ja vikna lokapróf? - Neeeei, því
ég á að passa krakkana. Bróðir minn þurfti líka endilega að koma með tvær dætur sínar til okkar meðan hann skemmtir sér konunglega í Frakklandi. Dem it.
Jæja, kem svo úr baði áðan, allteinu einn krakki í
viðbót! ..what? Svo eru þær hérna fyrir utan herbergið að leika sér og þriðji krakkinn syngur hástöfum! Úff.. kill me, kill me now. Svo bætir ekki stöðuna að ég var rosa glöð þegar Danni sagði mér að UTN einkunninn okkar væri komin, Danni aaalsæll með
10! Ég skælbrosandi þar sem ég er rosalega að vonast eftir 9u, horfi á einkunnina, bíddu..
ha? Ugh. Ekki besti dagurinn. Fékk 7, fkn tölvur. Versta martröðin eftir samt,
danska. Sá sem nær 9 eða meiru í þeim áfanga fær gott flick frá mér. Fast. Urr...
*Útrás lokið*
Aaaah, fimmtudagur segiði? Ég hef rosalega lítið að gera og frí eru kannski ekki það skemmtileg, enginn Guðni í augnablikinu, honum tókst að
stinga af. Ég held að krakkarnir frammi séu búnir að brjóta alveg helling þannig að... nei ég nenni ekki að tjékka á þeim.
Búin að vera að lesa Bridget Jones's Diary svona mér til
tímaeyðslu, ágæt bók, skil ekki nema 80% orðanna, sem er kúl. Og já, hún er á
ensku.
Einkunnirnar mínar búnar að vera ágætar, svona "lala", ég er ekkert rosalega uppi með mér (samt mostly 8ur sem er fínt). Að fara frá 10 í 7 í stærðfræði er ekkert svo gaman.
Ugh. Ég ætlaði svo að skreppa til Rvk á morgun, því mamma er að skreppa með stelpurnar suður svo brói geti tekið þær aftur til Florida. En neinei, svo ákveður hún að eyða ferðinni í að skoða
baðinnréttingar, við erum btw að fara að fá okkur allt nýtt á baðið, svona sturtu með útvarpi og
nuddi og öllu hvaðeina ^^ hnjehnje.
AAAAA þær eru að glamra á píanóið í hæðsta styrk! Verð að fara, bjarga hljóðhimnunum...
20janúar
Já,
eitt próf eftir. Allt búið að ganga alveg fuurðulega vel, sem er gott ^^, íslenska á mánudaginn og ég er ekki byrjuð að læra, spurning hvort ég nenni að læra e-ð, jújú, ég reyni. Eftir það fríííí!! Reyndar frekar svona
fríí, þar sem það er ekki næstum því nógu langt! Dem it. Kommon, erfið próf, gefið okkur meira frí!?
Annars allt frábært að frétta, mér gekk
frábærlega vel í ensku, þýsku og íþróttum bóklegum ^^,
vel í stærðfræði og
ágætlega í dönsku og félagsfræði. Yeah. Veit ekki hvernig íslenskan fer...
Annars annasamur dagur í gær, próf í íþróttum bóklegum, svo
dró Alex mig með á bláu með 1.A, eða einhverjum 10 af okkur ^^, oog já súkkulaðikaka og kók. Nemminemm. Næst var það
strætórúnturinn í einhverjar 20 mín, vei. Jæja, ég komst þá loksins heim og þurfti svo að fara aftur að ná í tölvuna mína, sem mér til mikillar skelfingar er TÓM,
ahaaallt farið.
Danni og Sindri: Þið snertið ekki tölvuna mína framar. Sjii. Svo kostar það ekki lítið að setja tölvuna í viðgerð, ugh. Eeeen anyways ég eyddi kvöldinu hjá Ninnu, leigðum myndina
Adrift, geðveik mynd sko. Við vorum næstum því grátandi þarna. Haha ^^
Sit núna hérna með
tómu fartölvuna mína, búin að vera að endurinstalla öllu heila gilinu. Partý. Stefni á sund á eftir með Guðna og Gumma, greyið Guðni að heilaþvo sig með spænsku um helgina sökum hryllilegs sænskuprófs á mánudaginn. Ég vil því biðja ykkur um, ykkar vegna, að taka ekki val-spænskuáfangann. Haha.

Ses.
Ég vil helst ekki eiga helming kommentanna aftur ^^!
07janúar
Hey þuú! aftuuur.. einusinni ehehenn..
...neeei það er ekkert að gerast hjá mér. Ég ætla samt að blogga.Já, semsagt. Skólinn byrjaði aftur á fimmtudaginn, bara ágætt að vera komin aftur í skólann verð ég að segja

, lokaprófin í nánd, og ég ætlaði að vera mjöög dugleg. Sem ég er ekki. En ég redd'essu... ^^ Prófin byrja semsagt á fimmtudaginn, og við byrjum á uppáhaldi Ingunnar, félagsfræði! -
Jæja þá er sá andskoti að minnsta kosti búinn... ´Brjálað hvað við eigum að lesa mikið undir það samt, ég les 15 bls í þessari bók og sofna, 15 bls ef ég er heppin! Ooo jæja, sjáum hvernig þetta fer allt saman.
Annars voru áramótin hjá mér góð sko

frekar mikið sprengt og svona. Guðni kom svo til mín 1. jan, veeei ^^, sem var gjiiðveikt. Blissar mar. Hey, nei, ég sagði þetta ekki! Ég er orðin alltof mikill Guðni í mér. Alex, til í að afGuðna mig? Held þú sért manneskjan í það.
Hmm.. held ég ætli að fara að leita að Guðna, hann er búin að vera furðulega lengi uppi að rabba við mein Vater. Hmm þýskan kemur sterk inn hjá mér, gott mál. ^^
- Það eruuuu 37 dagar í afmælið mitt! Yeah.
Skellum einni Cyanide&Happiness inní..

haha ég verð að setja aðra..
26desember
Gleðileg jól!! 
Vaknaðu, Ingunn! Vaknaðu! Ég var svooo að sofa út eitthvað matarboð hérna, fólk að verða klikkað, en stundum er bara EKKI hægt að vekja mig. En ég er vöknuð núna, og búin að éta fullt af gumsi sem ég vil ekki vita hvað var í, takk fyrir.
Jáá, ég ætlaði að byrja að læra í dag undir lokaprófin, gerði mér alveg allrosalegt plan í gær... en.. en.. svo sit ég bara í tölvunni og mér leiðist.. metnaðurinn í mér!
En jújú jólin gengin í garð og þetta er búið að vera alveg hreint yndislegt
, fékk fullt af kúl drasli í jólagjöf, held að gömlu frænkurnar séu loksins að vakna og átta sig á því að ég vil ekki styttu í jólagjöf, gó frænkur! ^^
Ég var að gera gæluverkefnið mitt í gær/nótt (sem ég er loksins búin að ákveða hvernig ég ætla að gera) og ég var á gólfinu að skrifa og.. og Grettir stal reglustikunni minni og strokleðrinu í nótt.. damn.. ég finn það ekki.
Lúmski köttur. 
En jólin voru æði, við vorum með krónhjört í matinn, já góðan daginn, það bragðaðist nú samt furðu vel, nemminemm...
Smá golden-moment hérna rétt áðan:
Pabbi: já, svo keyptum við líka kengúru í hagkaup...
Hafdís frænka: Kengúru? Til að borða?
Ég: Nei, hún er hérna í búri...
Harpa: Úti í garði... sástu hana ekki?!
* nei ókey, kannski EKKERT fyndið að lesa þetta ^^
...svo var möndlugrautur að vana og pabbi gamli krækti í möndluna.. urr.. ég fæ hana aldrei. En góð jól, þrátt fyrir fámenn jól, en Harpa systir kom til okkar frá Dk ^^.

Við systurnar
.. doppótt jól?
..segjum þetta gott..

- Ingunnsemþarfaðfaraaðlæra..
Ég vil komment!